Einkatímar og handleiðsla

Í EINKATÍMUM og HANDLEIÐSLU styð ég þau sem til mín leita, ræði og fræði um, eða þjálfa það sem við á hverju sinni. Viðfangsefnin eru til dæmis tengd álagi, mörkum, skipulagi, streitu, kulnun og kulnunareinkennum, stjórnunaraðferðum, leiðtogahlutverkinu, samskiptum, breytingum, ábyrgð í starfi, ákvarðanatöku, áföllum í starfsumhverfinu, lífsstíl, sjálfsstyrk og líðan.  

Tímar fara fram hjá Starfsleikni, við Strandgötu 11 í Hafnarfirði eða með fjarfundi ef það hentar betur, til dæmis fyrir þau sem eiga ekki heimangengt, vilja spara ferðatíma, huga að umhverfisvernd, búa utan höfuðborgarsvæðisins, eða eru erlendis.  Einkatími er almennt 50 mínútna langur og er bókaður jafn oft og hentar og þörf er á. Fyllsta trúnaðar er að sjálfsögðu gætt.

Til mín leitar fólk á eigin vegum jafnt sem stjórnendur og starfsmenn á vegum fyrirtækja og vinnustaða. 

Algengt er að handleiðsla og einkatímar séu greiddir af fyrirtækjum og stofnunum sem hafa hagsmuni og vilja til að styrkja starfsfólk og stjórnendur.  Það er samt ekki algilt og því er um að gera að kanna þátttöku stéttarfélags eða réttindi í sjóðum vegna kostnaðar.

Ég er ekki markþjálfi þótt ég vinni oft mjög svipað og markþjálfar sem vinna til dæmis með fólki við að finna, móta og nálgast markmið sín og langanir. Oft hefur fólk bestu ráðin sjálft, veit markmið sín og þekkir tólin og tækin sem virka best fyrir það, en nýtir sér aðstoð mína við að virkja verkfærin og hvatningu, handleiðslu og stuðning til að láta á þau reyna. Ég gef ráð eftir því sem menntun mín, reynsla og tilfinning leyfir og eftir því sem fólki hentar og það kærir sig um.

Ég ekki sálfræðingur og tek ekki að mér meðferð eða vinnu vegna alvarlegra geðrænna sjúkdóma. Mín menntun er grunnnám í sálfræði (BS í sálfræði, frá Háskóla Íslands) og sérþekking er á sviði vinnusálfræði  (MSc í viðskiptasálfræði, frá University of Westminster, London) og á sviði heilsusálfræði (MSc í sál-líffræði streitu og álags, frá University of Surrey, Romehapton), auk 22 ára farsællrar starfsreynslu á vegum Starfsleikni. Þótt ég sé ekki meðferðarsálfræðingur ræði ég að sjálfsögðu þau mál sem viðkomandi leitar til mín með og upp koma í samtölum, veiti stuðning og bendi á lausnir og leiðir eftir því sem við á hverju sinni.