streita, álag, kulnun og kulnunareinkenni

Í EINKATÍMUM og HANDLEIÐSLU styð ég þá sem til mín leita, ræði og fræði um, eða þjálfa það sem við á hverju sinni. Viðfangsefnin eru til dæmis tengd álagi í störfum, skipulagi, streitu og kulnunareinkennum, stjórnunaraðferðum, leiðtogahlutverkinu, samskiptum, breytingum, ábyrgð í starfi, ákvarðanatöku, áföllum í starfsumhverfinu, lífsstíl, sjálfsstyrk og líðan.  

Tímar fara fram hjá Starfsleikni, við Strandgötu 11 í Hafnarfirði. Einnig gegn um myndhringi (netspjall) ef það hentar betur, til dæmis fyrir þá sem búa utan höfuðborgarsvæðisins eða eru erlendis.  Einkatími er almennt 50 mínútna langur og er bókaður jafn oft og hver og einn kýs og þörf er á. Fyllsta trúnaðar er að sjálfsögðu gætt.

Til mín leitar fólk á eigin vegum jafnt sem stjórnendur og starfsmenn á vegum fyrirtækja og vinnustaða, einyrkjar, sjálfstætt starfandi aðilar, nýsköpunaraðilar og aðrir sem sinna krefjandi hlutverkum. 

Algengt er að handleiðsla og einkatímar séu greiddir af fyrirtækjum og stofnunum sem hafa hagsmuni og vilja til að styrkja starfsmenn eða stjórnendur.  Það er samt ekki algilt og því er um að gera að kanna þátttöku stéttarfélags eða réttindi í sjóðum vegna kostnaðar.

Ég er ekki markþjálfi. Ég gef ráð eftir því sem menntun mín, reynsla og tilfinning leyfir og eftir því sem hverjum og einum hentar. Oft hefur fólk bestu ráðin sjálft, veit markmið sín og þekkir tólin og tækin sem virka best en fær aðstoð mína við að virkja þau og hvatningu, handleiðslu og stuðning til að láta á þau reyna.

Ég er ekki sálfræðingur og tek ekki að mér meðferð eða vinnu vegna djúpra sálmeina eða geðrænna sjúkdóma.  Mín menntun, reynsla og sérþekking er á sviði vinnusálfræði  (MSc í viðskiptasálfræði) og heilsusálfræði (MSc í sál-líffræði streitu og álags) en að sjálfsögðu ræði ég þau mál sem viðkomandi leita til mín með eða upp koma, veiti stuðning og bendi á lausnir og leiðir eftir því sem við á hverju sinni.