Fræðsla
fyrir stjórnendur
Námskeið, erindi, fundir , ráðgjöf
og handleiðsla fyrir stjórnendahópa
og einkaráðgjöf fyrir stjórnendur.
Vinnustaður,
stjórnendur og starfshópar eru
jafn ólíkir og þeir eru
margir. Þess vegna sníður
Starfsleikni umfang, lengd og aðferð
eftir þörfum hverju sinni. Stundum
er unnið með einn afmarkaðan þátt
og einnig má blanda þáttum
saman í einn fyrirlestur, fund eða
námskeið. Kennsluaðferðir
eru t.d. fræðsla, sjálfsskoðun,
hópgreining, markmiðasetning og
eftirfylgni, verkefnavinna, raundæmi,
hlutverkaæfingar, umræður
og fleira.
Hafið samband
með tölvupósti eða í
síma til að ræða möguleikana.
Dæmi
um efni:
Breytingastjórnun – að leiða
fólk í breytingum
Stjórnun starfsanda – samskipti
og vinnugleði
Frammistöðustjórnun –
markmið, mat, endurgjöf og hvatning
Styrkleikastjórnun – styrkleikar
fólks eru verðmætasta auðlindin
Hvatning – hrós, jákvæð
endurgjöf, uppbyggileg gagnrýni
og leiðrétting
Starfsmannasamtöl – eru ekki verkefni
til að drífa af einu sinni á
ári
Viðkvæm starfsmannamál –
viðmót, ástundun, hegðun
ofl. sem bæta þarf
Álags- og tímastjórnun
– forgangsröð, skipulag, framsal,
streitustjórnun
Streitustjórnun – jafnvægi
og heilsa stjórnenda eru lykilatriði
Forvarnir gegn kulnun – áhættuþættir
í stjórnun
Einkalíf, starf og stjórnun
– samspil hlutverka
Samningatækni – samningar við
fólk
Lausn ágreiningsmála –
að sætta fólk
Leiðtogahæfni – fyrirmynd
sem leiðir fólk í rétta
átt
Ákveðni – lykilhæfni
stjórnandans
Stjórnun teyma og vinnuhópa
Val og ráðningar í störf
Móttökur og kynning nýliða
Fræðsla og þjálfun
í skipulagsheildum
Uppsagnir og starfslok
Sjá
einnig dæmi um viðfangsefni undir
flipunum „einkaráðgjöf“
og „fræðsla hópa“
hér fyrir ofan, en margt má
sníða inn í fræðslu
fyrir stjórnendur.